Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ miðvikudagur, desember 03, 2003
Við mamma horfðum saman á Dr. Phil í gærkvöldi Ég hef alltaf verið meðvituð um að móðir mín hefur sérstakt dálæti á dramatískum umræðum. Það kom mér hins vegar á óvart að hún hreifst í alvörunni af þessum ameríska sálfræðingi sem ljóstraði upp innstu tilfinningum 17 ára gamallar stúlku og erfiðri æsku hennar fyrir alþjóð. Svo þurfti að gera auglýsingahlé því að stelpan gat orðið lítið talað fyrir ekkasogunum. Þá varð mér litið á móður mína sem var farin að klappa með tárin í augunum. Ég vona að mamma sendi honum nú engin aðdáendabréf eða tjái honum ódauðlega ást sína.
Comments:
Skrifa ummæli
|