Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ föstudagur, desember 12, 2003
Hugsaðu meira Inga Sól vinkona mín er í Hagaskóla. Núna er hún í prófum og af einhverjum ástæðum völdu kennararnir 50 nemendur úr 200 manna árgangi til að taka prófin inni í sal skólans í stað þess að taka þau inni í stofu. Það er sérkennileg tilraunamennska í ljósi þess að stofurnar eru 30 og bekkirnir 22. Salurinn er óeinangraður og einu ofnarnir eru í loftinu og stígur því allur hiti beint upp úr salnum. Er víst gufuský bæði úr munnum nemenda í salnum og yfir þakinu að sögn Ingu. Ingu rekur minni til þess að hafa verið svo skjálfhent í prófinu að sum svörin lentu fyrir ofan garð og neðan, hún hafði ekki mikla stjórn á hreyfingum sínum svo svörin lentu ýmist á blaðinu eða á borðinu. Vinkona hennar klæddist tveimur þykkum peysum og úlpu í ofanálag í öðru prófinu af slæmri reynslu. Inga Sól ætlaði að gerast geðveikt lýðræðisleg og kvarta fyrir hönd skólafélaganna. Kennaranum varð þá á orði: ,,Æi, þér hlýnar þegar þú ferð að hugsa."
Comments:
Skrifa ummæli
|