Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ þriðjudagur, desember 16, 2003
Ég sá þátt Hannesar Hólmsteins um Halldór Kiljan Laxness Það var sérstaklega skemmtilegt hvernig hann einbeitti sér að aðalatriðum í stað aukaatriða, eins og að tilgreina sérstaklega sundáhuga einhvers sem bjó í London sem Halldór hitti sjaldan af því hann fór oftar til Rómar. Ég vil líka gera heimildarmynd um einhvern frægan. Í byrjun þáttarins ætla ég að tala rosalega mikið um í hvaða stjörnumerki einhver algjörlega ótengdur honum var. Í lokin ætla ég að leiða áhorfendur í allan sannleikann um eitthvað sem er hvort eð er á allra vitorði, eins og að maðurinn hafi t.d. verið kaþólskur. Rauði þráðurinn í heimildarmyndinni á hins vegar að vera mín eigin pólitíska lífssýn. Viðfangsefni mitt verður þá sönnun fyrir því að ég hef rétt fyrir mér, jafnvel þó þessi fræga manneskja hafi opinberlega haft allt aðrar skoðanir en ég.
Comments:
Skrifa ummæli
|