Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ sunnudagur, október 19, 2003
Vetrarfríið hefur liðið í innihaldsríku aðgerðarleysi: búin að lesa blogg eins og geðsjúk manneskja. Í gærkvöldi passaði ég litlu bræður mína heima hjá ömmu og afa á meðan þau brugðu sér á meiriháttar frímerkjasýningu sem afi stóð fyrir. Það hefur því miður aldrei neinn leitt mig í allan sannleikann um dásemdir frímerkjakreðsunnar (hún er í stærra lagi - afa var boðið til Mexíkó á frímerkjasýningu fyrir tveimur árum ) en ég ímynda mér að það sé heimur sem mér opnast ekki nærri strax. En það er eitthvað svona hálf sérkennilegt við sum áhugamál finnst mér. Pabbi og bróðir hans ferðuðust grimmt um heiminn á milli skákmóta á mínum aldri, þeir voru víst rosalega góðir. Ég erfði ekki þessa hæfileika. Ég hef það samt stundum á tilfinningunni að ég eigi eftir að enda einhvern veginn svona. Ég á eftir að gerast ofsaáhugakona um tannstöngla um sextugt og vinna í tíu ár að fræðibók um tannstöngla á sjöunda áratugnum með áherslu á áhrif tannþráðarbyltingarinnar á lögun tannstöngla. Bókin slær pottþétt í gegn og fyrir gróðann flyt ég á einhverja óbyggða eyju í Suðurhöfum. Ef hún slær ekki í gegn þá þykist ég vera ofsalega hissa.
Comments:
Skrifa ummæli
|