Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ miðvikudagur, október 22, 2003
Ungi maðurinn í trjánum Ég hélt ég væri labbandi, æ það voru svona tré og svona. Eins og í hittífyrra. Eins og þegar ég gerði það sama með einkurri gellu. Allt í einu var ég bara einmana í lautinni við sjóinn. Og þá kemur ungi maðurinn úr trjánum með gamlan mistiltein í fæti sér. Allsber með svona myndir af laufum á nabblanum. Og hann skokkar meðfram sjónum, pissar í sjóinn, sýgur upp öldur með nefinu, frussar út úr sér og þegir. Svo hugsaði hann: Meyja: ég er trjábolurinn, trjábolurinn og kálfur. Mjaltakóngurinn sem reis við dogg, minningahlandið. Ég er mælsku- og rökræðu- meistaraefnið; gubbandi aliþrösturinn, gungudýrið gjallfrítt sem ljóðmál. Afi minn ómálaður umorpinn ömmu, guðdómleg gredda gaflræddar ástar. Og konan mín drekkur sig drukkna undir mínum laufum. Ég er allra mestur óskhyggju frjálslyndra og sjá, töð mín bralla, þau bralla í skjóli en fúna troðin stígvélum íhaldsins. Og haukarnir skjóta á röndótt markið. Og kettir ráðherrans snuðra í ódælum einkunnum mínum. Þá þótti mér ég vera skjáta og þá gubbaði ég. Eftir Uglu Egilsdóttur og Önnu Tryggvadóttur.
Comments:
Skrifa ummæli
|