Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ miðvikudagur, október 29, 2003
Æi manstu ekki eftir drullukuntunni sem ég er að nota? Mér finnst alveg einstaklega gaman að hlera samtöl fólks sem ég þekki ekki baun. Þess vegna hef ég líka heyrt út undan mér mjög persónulegar upplýsingar í gegnum tíðina. Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið opinskátt á kaffihúsum eða á göngum sínum á Laugaveginum eða á almenningsklósettum. Í dag var ég einmitt í mestu makindum á kvennaklósettinu í MH. Þegar ég var búin að loka að mér heyrði ég að einhverjar stelpur ryksuðu inn á meðan þær töluðu fjálglega um persónuleg mál, úr þeim samræðum greip ég einmitt titilinn á þessari færslu. Ég varð svo spennt að vita hver drullukuntan var og af hverju hún þótti svo slæm, og líka hverjir voru að ræða saman. En það fæ ég aldrei að vita og það er þess vegna sem það er svona hentugt að ræða hjartans mál og ljótari mál þegar margir eru í kringum mann, enginn þekkir neinn og enginn getur tengt upplýsingarnar við nokkra manneskju.
Comments:
Skrifa ummæli
|