Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ sunnudagur, október 05, 2003
Á föstudaginn fór ég í afmæli til Högna Egilssonar, Andra Egilssonar og Andra Ólafssonar. Ég vil taka það fram að sniðugasta afmælisgjöfin sem þeir fengu voru ljóðabækur eftir Önnu Tryggvadóttur, Nínu Baldursdóttur og mig. Ljóðin voru einstaklega frumleg og fjölluðu um aliþresti ásamt fleiru. Daginn eftir átti ég að mæta á kóræfingu klukkan hálf tólf sem er fram úr hófi skikkanlegur tími. Og ég átti að gera fleira, ég átti að spila á píanóið undir spunaæfingar í prufunum fyrir leiklist þrjúhundruð, ég var búin að hlakka einstaklega mikið til þessa heiðurs. En svo kom á daginn að ég, hinn prúði menntaskólanemi sem alltaf vakna fyrir níu um helgar, svaf til svona tvö og það þótti hin mesta skömm. Ég æddi af stað og tók strætó, varð guðslifandi fegin þegar ég var sest heilu og höldnu inn í strætó, svo fegin að ég tók ekki eftir því að þetta var vitlaus vagn. Og vagninn ók með mig lengst út í rassgat og ég rankaði ekki við mér fyrr en ég var komin langleiðina upp í sveit. Það varð lítið úr kóræfingum og píanóspili hjá mér þann daginn.
Comments:
Skrifa ummæli
|