Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Ég var í síðasta frönskutímanum mínum í dag. Hitinn lækkar með hverjum deginum. Þetta fer bara að nálgast þrjátíu gráðurnar. Ég endurheimti megnið af heilasellunum mínum í dag sem sólbrunnu í vikunni. Ég skrifaði bréf fyrr í vikunni sem ekki var heil brú í. Á eftir ætla ég að skrifa bréf sem er hægt að lesa. Ég hef líka verið að klæða mig hægt og þétt í einhver föt. Brjóstahaldarinn er þó ennþá víðsfjarri. Í dag fór ég í geisladiskabúð til að hlusta á Britney Spears og Madonnu eins og venjulega. Ég endaði þó ögn menningarlegri og keypti bæði írskan disk og franskan. Það var eftir að ég var orðin veruleikafirrt af því að vera stanslaust inni í búðinni í 5 klukkutíma. Sindri hafði orð á því að bloggið mitt væri ekki nema til að lesa á svona mánaðarfresti, að maður missti aldrei af neinu. Mér varð um og ó í mínum innstu hjartarótum. Ég verð að fara að segja eitthvað meira spennandi. En hvað getur það verið? Á ég að opinbera öll mín leyndarmál eða einbeita mér að slúðri um annað fólk? Já kannski get ég gert opinber öll þau leyndarmál sem mér hafa verið sögð í trúnaði. Ég gæti líka jafnvel sagt frá slúðri af hinni ofurlíflegu og hámenningarlegu Edduverðlaunahátíð. Hvað finnst ykkur? Á ég að vera með vikulegan þátt sem heitir ,,strákar sem ég hef verið skotin í"?
Comments:
Skrifa ummæli
|