Sannar gubbusögur



MSN-ið mitt

Sindri
Maísól
Orri ofstuðlari
Daria
hóra
Katrin
Lára
Svandís
Anna og systur
Andri Ó
Gestur
Sandra
íslenskunemi
Elín
Dagur
Halla
Alma
Sverrir Joð
Patrekur 85
Patrekur 5
Ingi
Tobbi
bossabarn
Atli Viðar
bíólingur
bíóvin
tár hjartarins
mafían
Jakob
Þórdís
Þórdís frænka
Mitt malasíska heimilsfang:   
Ugla Egilsdottir  
c/o Mr Hakim B. Mansor  
no 12, Lorong m.p 1/12  
Manjong Point syeksyen 1   
32040 Sri Manjong,   
Perak Darul Ridzuan, Malaysia   
~ sunnudagur, maí 04, 2003
 
Jæja, núna er ég á fullu að læra undir spænskupróf
Mig langar til að mæla með sérlega hlutlægri bók sem ég las um dagana um stjörnumerkin. Ég verð að segja að ég hef meiri áhuga á sjálfri mér eftir lesturinn, mér finnst ég merkilegri manneskja en áður. Það versta er að ég er farin að öfunda öll hin stjörnumerkin af því hvað þau eru merkileg. Linda Goodman, sem er höfundur áðurnefndrar bókar, er alveg einstaklega lítið fyrir væmni og háfleygni:

Úranus er sifellt að valda togstreytu í sál vatnsberans, því þessi óútreiknanlega og grimma pláneta breytinganna veldur því að hann sér skýrt fram í tímann. Vatnsberinn tilheyrir mannkyninu. Hann er fulltrúi vona þess og dýpstu hugsjóna. Jafnvel málmur Vatnsberans, úraníum, er eiginlega ekki málmur, heldur geislavirkt, málmkennt efni, sem hvergi finnst hreint. Það er mikilvægt í öllum kjarnarannsóknum og getur stanslaust haldið áfram að klofna. Þeir, sem vilja kynnast Vatnsberanum, geta aðeins skyggnst inn í leyndan heim hans þegar átta eldingar endurkastast í safírsteini þessa stjörnumerkis, en þér mun aldrei takast að rýna í hið einmanalega hjarta hans eitt andartak. Nema auðvitað ef þú býrð líka í landi morgundagsins.

Mér finnst að það ætti að setja þessa bók upp sem leikrit.
Comments: Skrifa ummæli

Powered By Blogger TM