Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ þriðjudagur, apríl 15, 2003
Í gærkvöldi kl 1920 bað ég mömmu um að koma í bíó á the Hours. Hún afþakkaði pent og sagðist heldur vilja borða kvöldmat með gesti okkar og fara svo á bíó með honum, á einhverja mynd sem hún vissi ekki einu sinni hvað hét. Ég sagðist þá með þykkjuþungri rödd bara ætla ein á bíó. Ég fór á bíó og skemmti mér bara nokkuð vel. Í kórnum eigum við að selja páskaliljur. Ég veigraði mér við því að taka blóm til að selja, vegna þess hve iðin ég er við að drepa blóm, en lét undan. Ég fékk nákvæmar útlistanir á því hvernig ég átti að setja blómin inn í ísskáp. Ég flýtti mér heim, titrandi og skjálfandi, og ætlaði að setja blómin inn í ísskáp. Reyndar var ísskápurinn fullur, svo ég lét blómin bara inn í frysti............................
Comments:
Skrifa ummæli
|