Sannar gubbusögur
|
||
Sindri Maísól Orri ofstuðlari Daria hóra Katrin Lára Svandís Anna og systur Andri Ó Gestur Sandra íslenskunemi Elín Dagur Halla Alma Sverrir Joð Patrekur 85 Patrekur 5 Ingi Tobbi bossabarn Atli Viðar bíólingur bíóvin tár hjartarins mafían Jakob Þórdís Þórdís frænka |
Mitt malasíska heimilsfang:
Ugla Egilsdottir c/o Mr Hakim B. Mansor no 12, Lorong m.p 1/12 Manjong Point syeksyen 1 32040 Sri Manjong, Perak Darul Ridzuan, Malaysia ~ sunnudagur, apríl 27, 2003
Ég hef ákveðið að leggja mitt lið í kvenréttindabaráttuna með því að berjast fyrir breytingum í skólakerfinu. Næstu daga ætla ég að láta undirskriftalista ganga um skólann minn sem ég ég ætla svo að senda til rektors með áskorun um að breyta kennslubókunum í íslensku. Þá með aðaláherslu á að útrýma karlkyni úr íslenskri málfræði. Þetta vil ég meina að sé þróun til hins betra þar sem karlmenn hafa framkvæmt flest voðaverk mannkynssögunnar. Horfum til dæmis á Hitler og hans líka, allt voru þetta karlmenn. Ég held að með því að hætta að beygja nafnorð og lýsingarorð í karlkyni, segja t.d. ,,mennan-mennuna-mennunni-mennunnar" í stað maðurinn-manninn-manninum-mannsins, þá muni hryðjuverkum fækka. Svo með tíð og tíma er hægt að minnka umsvif karlmannsins í samfélaginu. Það vinnst helst með því að niðurlægja hann. Það væri t.d. hægt að neita þeim um nafngiftir, þeir yrðu að sætta sig við númer. Davíð Oddson héti þá 37 í stað fyrra nafns, Jósafat væri 9264 og svo framvegis......
Comments:
Skrifa ummæli
|